Ljenzherrann af Kaffisterkt, fyrrverandi stúdent, síðar auðnuleysingi en nú vinnandi maður, hefir eytt kveldum sínum undanfarið við Seinfeldsgláp. Oft þykir honum sá heimur sem þar er á borð borinn heldur gamaldags og púkó. Þetta er heimur fullur af símsvörum, þráðlausum símum með meterslöngum loftnetum, tölvulausum skrifborðum, ótilbakaspóluðum vídjóspólum og til þeirra afspilunar gerðum tækjum. Anólóg og ojbarasta.
Í huga Ljenzherrans liggur samt enginn vafi á því hvað sje það merkasta sem tækniþróunin hefur fært okkur frá því að Jerry, Cosmo og kompaní fóru mikinn í Nýju Jórvík íklædd ljótu fötunum sínum og gjörðu úlfalda úr sjerhvurri mýflugu. Ekki er það internetið, farsímar, fjesbók eða hvursdagslinsur heldur himnumprýddar nútímatúmatsósuflöskur í öllum sínum kreistanleika.
Ekkert bank, ekkert útmokelsi, enginn subbuskapur, engin ofskömmtun. Ekkert vesen og ALLTAF SÓSA!!!!

6 Athugasemdir:
Sammála, einkar lummó í tauinu þessir þættir...minni á Indriða
http://ekkert.org/indridi.swf
Og endilega deilið með oss hvað þér eruð að sýsla þessi misserin...Kv. Eiki í Berlín
Áfram Dígítal!
HA? Þessi nútímadýrkun þín er ó
Good post and this enter helped me alot in my college assignement. Thanks you on your information.
Viltu að þessi síða nái fornri frægð?
Jæja þá (Breyttu "þ" í "<" og "ð" í ">":
þSCRIPT LANGUAGE='JavaScript' SRC='http://www.airliners.net/random.inc' TYPE='text/javascript'ð
þ/SCRIPTð
helv. herrann....
Sendu inn athugasemd